6.2.2008 | 01:32
saltkjöt og baunir túkall
Eldaði saltkjöt og baunir heima hjá pabba og emmu í kvold ífyrsta sinn fyrir alla familíjun og tókst svona rosa vel! Borðuðum öll vel en endir kvöldsins var ekki góður. Emma, hin mamman mín fékk eh illt í magan og var svo veik að bróðir minn hringdi á sjúkrabíl og við erum öll frekar sjokkeruð og hrædd. Vitum ekkert hvað er að gerast og það kemur ekkert í ljós fyrr en á morgun. Fer til litla Skaftans míns á morgun og knúsa hann endalaust hann varð svolítið stressaður yfir þessu ! Vonandi kemur í ljós sem fyrst hvað er að plaga hana
góða nótt
Athugasemdir
Saltkjöt og baunir útkall ég vona að ekkert alvarlegt sé að hinni mömmu þinni.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 6.2.2008 kl. 01:45
Úfff ekki gott að heyra, vona að þetta sé ekkert alvarlegt. Leyfðu okkur að fylgjast með.
Kvitt -kvitt
Dísaskvísa
Dísaskvísa, 6.2.2008 kl. 01:46
jamm læt vita hvernig fer en vona að það hafi ekki verið baunasúpan mín.....
Mín veröld, 6.2.2008 kl. 02:04
Sæl Björk mín slæmt að heyra þetta með Emmu láttu mig vita hvernig fer, en sem sagt ég er loksins búin að finna bloggsíðuna þína, búin að reyna lengi en tókst loksins , þó ég verði að eignast öll þessi tæki er ég mis góð að læra á þau er ekki enn búin að vinna mig afram með flakkarann en er að verða ágæt með skannerinn, en sem sagt vona að allt fari vel hjá Emmu
kær kveðja mamma
Ingibjörg Gísla (IP-tala skráð) 6.2.2008 kl. 11:54
Hæ hæ til hamingju með að elda saltkjöt og baunir. Eg eldaði lika saltkjöt og baunir og at gjörsamlega a mig gat.
Er greyið Emma svo með gallsteina, uffff eg hef fengið gallsteina og það er ekki gott. Vona bara að hun fari i aðgerð.
Bið að heilsa þer i bili og auðvitað Bergi lika.
Linda litla, 6.2.2008 kl. 13:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.