Rússíbanavika!!

Jæja þá er vikan búin og hún hefur sannalega verið rússíbani!! En samt finnst mér eins og það séu liðnar 4 vikur það er svo mikið um að vera í hausnum á mér Shocking Það var frekar súrt veður í dag þannig að ég er búin að vera að taka til hér heima og þrífa og veitti sko ekki af, Bergur fór með Maríu Lindud. og Kormáki í sveitina seinnipartinn og koma aftur á sunnudaginn og vá hvað hann var spenntur !! Stóð út í glugga og gaalaði á 5 mín. fresti : hvenær koma þau? hvenær ? ha? ha? Tounge þannig að það verður róleg helgi svona bara fyrir mig helgi!! Ég fór í kvöld í sund og synti 500 m og svo beint á fund þannig að ég verð sennilega með harðsperrur á morgun þar sem ég hef EKKERT hreyft mig í langan tíma. En nú er ég að sofna framm á lyklaborðið það er víst merki um að maður eigi að fara að sofa er það ekki ? Woundering

kveðja Björk sundkona


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda litla

Fyndið þetta er held ég fyrsta helgin mín á þessu ári sem ég er ekki að vinna og er líka barnlaus..... og hvað heldurðu... ég var farin að geyspa fyrir klukkan 9 í gærkvöldi og svo sofnaði ég yfir sjónvarpinu.

Linda litla, 30.8.2008 kl. 14:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband