10.2.2008 | 20:09
Ég er meistara kokkur...
og segi öllum það sem nenna að hlusta en stundum bara er þetta ekki að gera sig !
Í kvöld var hér í boði: brendur kjúklingur, brend sósa og brendar franskar
en sallatið brann ekki bara hneturnar sem fóru á salatið. Og verði okkur að góðu , jú og til að toppa þetta þá brann pottaleppinn minn á hellunni!!!
En Bergur minn, hann fékk sér sko tvisvar á diskinn
Athugasemdir
hahaha! snilld! Ætli Bergur hafi ekki bara verið að sýna kurteisi og láta eins og honum fyndist þetta gott
Ólöf Anna Brynjarsdóttir, 10.2.2008 kl. 20:16
hahaha nei nei nei hann er eins og köttur Bakkabræðra, hann étur allt!!!!!
Mín veröld, 10.2.2008 kl. 20:19
Jú nú hló ég
Mín veröld, 10.2.2008 kl. 21:09
Sum börn eru bara vel upp alin og borða allt,ég var allavega og er þannig eins og sést hahaha
Guðný Einarsdóttir, 10.2.2008 kl. 22:11
hljómar vel nammi namm
Ólafur fannberg, 10.2.2008 kl. 22:42
mmm já sérstaklega pottaleppurinn
Mín veröld, 10.2.2008 kl. 22:58
Ég hreinlega dó úr hlátri.......til að toppa þetta þá brann pottaleppinn minn á hellunni LOL
Þú ert snillingur HA HA HA HA HA
Aumingja Bergur minn he he
Linda litla, 10.2.2008 kl. 23:26
já hlæðu bara ég kveikti nú bara í einu viskastikki þegar ég bjó hjá þér
hahahahaha
Mín veröld, 11.2.2008 kl. 00:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.