komin heim

Jæja þá erum við komin heim. Þetta var erfiður tími en leið ótrúlega fljótt. Er búin að vera úti í 2 daga og fyrstu fréttirnar sem ég fékk þegar heim var komið voru þær að hin tekjuháa og moldríka ég á að borga tæpar 170 þúsund til baka til tryggingarstofnun. Það eitt varð til þess að ég fór endanlega á botninn!! En ég ætla að standa við loforð mitt við mig sjálfa og breyta mínum lífstíl á allan hátt!! En þolinmóða ég vill fá þolinmæði STRAX!! Og helst í gjær. En ég er búin að gera helling þessa 2 daga, fór í viðtal á lansanum og það auðvita misskildilst allt þar og tók marga klukkutíma að fá bara að tala við réttann lækni en það er komið í gang núna og á að mæta aftur á þriðjudag en þá verð ég að vera hætt á lyfjunum sem ég er á því ég á að fara á einhver ný lif. Svo fór ég í ráðgjafaviðtal í dag og byrja á mánudaginn eftir viku í eftirmeðferð sem verður erfitt en nauðsynlegt. Verð þar alla morgna í 4 vikur. Og svo er skólinn að byrja hjá okkur báðum en ég ætla bara að taka 2 fög eða 3 sé til hvað námsráðgjafinn segir.

JEJ loxins er Björk að fara að lifa einhverju lífi!!! "Gamla" lífið er vonandi á leiðinni langt langt í burtu en ég verð að muna að vera þolinmóð og taka 1 dag í einu.

Og Linda mín miljón þakkir fyrir srtákrófuna :) love youHeart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gangi þér ofsalega vel

Ragga (IP-tala skráð) 14.8.2008 kl. 21:25

2 Smámynd: Linda litla

Elsku kjéllingin mín, þetta var nú það minnsta sem ég gat gert. Endilega bara láta mig vita ef eitthvað er sem að ég get aðstoðað, geri það sem ég get. Það er bara gott að fá þig heim aftur og núna verður tekið sig á.

Við skulum líka passa okkur á því að liggja ekki sitthvoru megin í borginni aleinar..... gerum eitthvað í því.

Farðu vel með þig og þína knúsímúsin mín.  lov ya tú

Linda litla, 14.8.2008 kl. 23:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband