3.5.2008 | 19:13
Til mömmu!
Mamman gekk framhjá herbergi dóttur sinnar og varð nokkuð undrandi að sjá að það var búið að búa um rúmið og taka vel til í öllu herberginu.
Hún sá að það var umslag á miðju rúminu og á því stóð : TIL MÖMMU
Mjög áhyggjufull opnaði hún umslagið og las skjálfhent bréfið sem í því var.
Elsku mamma. Það hryggir mig nokkuð að þurfa að segja þér með bréfi þessu að ég er hlaupin að heiman.
Ég geri þetta svona til að koma í vef fyrir að þið pabbi reiðist mér.
Ég hef að undanförnu fundið sterkar tilfinningar til Ahmeds og hann er svo yndislegur þrátt fyrir öll götin, húðflúðrin, skeggið og motorhjólagallana sína.
En það er ekki bara það mamma mín að ég ber svona sterkar tilfinningar til hans því ég er ólétt og Ahmed segir mér að hann sé svo glaður með það.
Hann er þegar búinn að kaupa hjólhýsi fyrir okkur að búa í og hann er búinn að safna helling af eldivið til að halda á okkur hita í allan vetur.
Hann er búinn að segja mér að hann langi til að eignast með mér fullt af börnum og ég er svo innilega sammála honum með það.
Ahmed hefur kennt mér að marijuana gerir engum illt og í raun og veru ætlar hann að rækta nóg af því fyrir okkur þannig að við munum eiga nóg af því afgangs til að skipta á því og kókaíni og E-töflum handa okkur báðum.
En ég vona líka að vísindamenn finni fljótlega lækningu á aids svo Ahmed mínum batni, hann á það svo skilið! En ég bið þig að hafa ekki áhyggjur mamma mín því að ég er nú orðin 15 ára og kann alveg að sjá um mig sjálf.
Þar að auki er Ahmed orðinn þrítugur þannig hann veit vel hvað hann er að gera. Einhvern daginn ætla ég svo að koma í heimsókn svo þú getir hitt barnabörnin þín.
Þín dóttir Guðrún
P.S: Mamma, ekkert að ofansögðu er satt. Ég er í heimsókn hjá Siggu í næsta húsi. Mig langaði bara að láta þig vita að það er margt verra í heiminum en einkunnarspjaldið mitt sem er í efstu skrifborðsskúffunni. Ég elska þig.
Láttu mig vita þegar það er óhætt fyrir mig að koma heim :)
HAHAHAHAHAHA!

Athugasemdir
haha góður,
Hafðu það gott stelpa
Guðný Einarsdóttir, 3.5.2008 kl. 22:16
LOL- LOL -LOL
Djö... er þessi sniðug!- af hverju datt manni þetta ekki í hug hér í denn?
Dísaskvísa, 5.5.2008 kl. 20:59
hehe snilld, góð hugmynd. Vona bara að sonur minn eigi ekki eftir að fata upp á þessu.
Linda litla, 5.5.2008 kl. 22:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.