7.4.2008 | 23:44
Er alveg hætt að nenna að blogga
Veit ekki hvað málið er, er búin að vera með kvef í 2 mánuði og bara alltaf þreytt. Vorum í fimmtugs afmæli um helgina og rosa gaman bara. Vonandi fer ég að hressast með hækkandi sól og svoleiðis. Sé ekki framm á að komast út í sumar, ekki það að ég hafi ekki efni á því bara vegna þess að ég fæ ekki vísa útaf gömlum skuldum en er samt með allt í 100 prósent skilum núna þannig að þetta er fúlt en ég kom mér í þetta fyrir nokkrum árum og verð bara að bíta í það súra. Vá vælið í mér öhhhh bara bless núna er það ekki ?
Athugasemdir
Elsku Björkin mín..... þú ert þreytt af því að þú ert þunglynd. Þú þarft að drífa þig meira út í ferska loftið. Ég er allt önnur eftir að ég hætti að sofa allan daginn og fór að kíkja út í ferska loftið. Núna sef ég EKKERT á daginn, fer yfirleitt ekki seinna í rúmið en miðnætti og fer á fætur á morgnana. Er hætt á öðru geðlyfinu og búin að minnka skammtinn á hinu niður í helming. Og svo það sem ég held að sé áhrifamest er að ég er alltaf að lesa í bókinni "secret" ég hef tröllatrú á henni og les í henni á degi hverjum, hún er alltaf á náttborðinu hjá mér.
Endilega elsku vinkona, ef að ég get gert eitthvað til að hjálpa þér að líða betur, láttu mig þá vita. Ég er sko alveg til í labbitúra, sund, föndur eða bara eitthvað með þér. Bara hafa samband og ég er reddí.
Lov ya, vil ekki sjá þig drabbast niður, mér finnst of vænt um þig til þess. Bara láta mig vita. Kv. Linda litla.
Linda litla, 7.4.2008 kl. 23:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.