Var mamma þín vond eins og mín?

Var mamma þín vond?



Mín var Það !



Við áttum verstu mömmu í heiminum! Þegar aðrir krakkar borðuðu nammi í

morgunmat fengum við hafragraut.

Þegar aðrir krakkar fengu pepsí og súkkulaði fyrir hádegismat fengum við

samlokur.

Og menn geta bara rétt ímyndað sér hvað hún gaf okkur í

kvöldmat,allskonar MAT.



Mamma vildi alltaf vita hvar við vorum, ALLTAF,það hefði mátt halda að

við værum í fangelsi. Hún vildi vita hverjir voru vinir okkar og hvað

við vorum að gera með þeim. Hún krafðist þess ef við segðumst ætla að fara

eitthvað í klukkutíma þá væri það aldrei meira en klukkutími.

Þegar það var FRÍ í skólanum þurftum við að vinna. Við að þvo diskana,

Búa um rúmin, læra að elda ,þvo þvottinn og annast önnur leiðinleg störf.

Við héldum að hún lægi vakandi á nóttunni bara til að pæla út hvað hún ætti

Að láta okkur gera daginn eftir. Hún lét okkur alltaf segja sannleikann,

allann sannleikann og ekkert nema sannleikann.Þegar við vorum unglingar,

gat hún lesið hugsanir okkar. Þá var lífið ERFITT.

Þegar allir fengu að fara á djammið og skemmta sér 12 eða 13 ára, fengum

við ekki að gera neitt fyrr en við vorum 16.ára. Mömmu vegna misstum við

af fjölda mörgu og miklu sem aðrir krakkkar gerðu. Ekkert okkar hefur

verið tekið fyrir að stela úr búðum,eyðileggja fyrir öðru fólki eða

verið tekið fyrir nokkurt afbrot af neinu tagi. ALLT henni að kenna. Við urðum

aldrei full,kunnum ekki að reykja, fengum ekki að vera úti allar nætur

og misstum því af að gera svo fjölmargt sem unglingar annars fá að gera.

Á sunnudögum þurftum við að fara í kirkju, og misstum aldrei af messu.

Núna erum við flutt að heiman. Guðhrædd, menntuð og gott fólk.Við gerum

okkar besta að vera vondir foreldrar eins og mamma okkar var.



Ég held að það sem er að í heiminum í dag sé að Það er bara ekki nóg af

vondum mömmum lengur.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Einarsdóttir

Þetta er ekki nógu gott,það vantar vondar mömmur

Guðný Einarsdóttir, 5.2.2008 kl. 19:27

2 identicon

Ég átti líka svona vonda mömmu.Hún keypti aldrei franskbrauð bara heilhveitibrauð og hún var alltaf að passa að ég væri nógu vel klædd. Ég er núna fertug og hún er enn að passa að ég sé nógu vel klædd þegar við spilum golf saman. Óþolandi þessar vondu mömmur

Lísa Margrét Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 5.2.2008 kl. 19:37

3 identicon

þú ert fullur!

ég (IP-tala skráð) 5.2.2008 kl. 21:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband