Góður .....

Ungur maður lenti í þeirri óþægilegu aðstöðu að hætta að ná fermingarbróður sínum upp svo hann fór til læknis. Læknirinn sagði honum að vöðvarnir sem stjórni blóðflæðinu niður í liminn séu ónýtir og það sé ekkert sem hægt sé að gera. En hann væri tilbúinn að prófa tilraunaaðgerð. Ungi maðurinn spurði hvernig aðgerð það væri og læknirinn útskýrði það fyrir honum:
“Við tökum vöðva úr rana fílsunga og græðum þá í stað ónýtu vöðvanna og vonum það besta.”
Unga manninum fannst þetta allt hljóma hálf óhugnanlega, en tilhugsunin um að geta aldrei stundað kynlíf framar varð yfirsterkari.
Sex vikum síðar er komið að því að prófa græjuna og býður hann kærustunni að því tilefni út að borða. Á veitingastaðnum finnur hann allt í einu ótrúlega pressu á félaganum, hann er að fá roknar standpínu. Hann ákveður að renna aðeins niður klaufinni til að losa um vininn.
Um leið og hann opnar klaufina, sprettur félaginn út, grípur kínarúllu af borðinu og hverfur aftur ofan í buxurnar. Kærastan hans gapir orðlaus yfir þessu í nokkrar sekúndur og segir síðan: “Vá, geturðu gert þetta aftur?”

“Já örugglega,” segir gaurinn eldrauður í framan, “en ég er ekki viss um að það komist önnur kínarúlla upp í rassinn á mér.”

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Einarsdóttir

OMG..hahaha þessi er sko góóóóóður

Guðný Einarsdóttir, 25.1.2008 kl. 19:41

2 Smámynd: Linda litla

oj.... Björk lol

Linda litla, 26.1.2008 kl. 01:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband